öööööööö svolítið langt síðan síðast ;)
By prakk0 on Jan 26, 2010 | In Prakkarar | Send feedback »
en þannig er það nú bara...
ótrúlega margt í fréttum en ég man ekki neitt af því, allavega ekkert frá því ég skrifaði síðast hehe... það sem er svona nýlegra í fréttum er að krissi er farinn að æfa fótbolta m. 5. flokki breiðablik og gengur bara alveg ljómandi vel. það eru allir strákarnir í bekknum að æfa og líka flest allir strákarnir úr salaskóla sem hann er alltaf með þannig að hann á næga vini þar, og bað um það þegar hann kom heim af æfingu í gær hvort hann mætti fara á goðamótið sem er í lok febrúar.. sé ekkert að því ![]()
nú, það eru allir búnir að eiga afmæli síðan síðustu skrif voru birt og meira segja eiga tvenn jól þannig að heilmargt hefur gerst.. ef ég reyni að tipla á því stærsta þá t.d átti kristofer 10 ára afmæli í mars í fyrra og hélt það í álfabakka þar sem við horfðum á ævintýri desperoux? ásamt öllum strákunum í bekknum og nokkrum fleiri. allir fengu popp og kók og skemmtu sér ljómandi vel.
í apríl fluttum við úr rjúpnasölunum og fluttum "alla leið" yfir í ásakórinn, ca. 700 metrar sem skilja þessar blokkir að. en munurinn á húsnæðinu er nú öllu meiri og betri en við fórum úr 3 herbergja í 5 herbergja og hreiðrum nú um okkur í 200fm2 með bílskúr og auka geymslu. núna eiga allir sitt herbergi nema við hjónin sem verðum víst að deila áfram hehe.
í maí byrjun giftum við sverrir okkur og vorum með stóra veislu fyrir alla vini okkar og fjölskylduna. þessi dagur var yndislegur og lukkaðist frábærlega og líður hratt að ársafmælinu
í júní átti katrín mín 9 ára afmæli. við héltum grillveislu fyrir fjölskylduna en slepptum bekkjarafmælinu þar sem við vorum ekki búin að koma okkur almennilega fyrir..það verður bara glæsilegt afmæli haldið í ár fyrir prinsessuna á heimilinu.
í júlí ferðaðist fjölskyldan slatta, stóru krakkarnir fóru til pabba síns og við norður á land og austur fyrir fjall í bústaðinn, yndislegt að geta farið alltaf í bústaðinn. lísa frænka kom til okkar og var á landinu í rúmar 2 vikur.
í ágúst fórum við sverrir til london og vorum 2 daga hjá lísu og 2 daga á hóteli..fórum á U2 tónleika og ætluðum á liverpool leik en hann var of seint á heimfarardeginum. við sáum alla leikmennina samt labba hinum megin við götuna inn á hótelið sitt og var sverrir alveg í skýjunum með það
skólinn byrjaði líka aftur í ágúst og var krissi að byrja í nýjum skóla. var ekki laust við það að honum kviði örlítið fyrir en það hefur gengið ljómandi vel hjá honum í nýja skólanum.
september leið hratt hjá, ég varð matráður í vinnunni minni og líkar það ljómandi vel.
sverrir hélt upp á afmælið sitt í október og fórum við í bústaðinn með vinum og áttum yndislega helgi saman.
jón pétur varð 3 ára í nóvember og var afmælisveisla hér heima með fjölskyldunni og svo eitthvað smá í leikskólanum. sá stutti var alsæll með kórónuna sem hann fékk hjá þeim í leikskólanum.
og þá var komið að desember. við vorum loksins búin að safna fyrir sófa i sjónvarpsholið og fengum hann í byrjun des, jólaundirbúningur hófst og glögg og litlujól voru um hverja helgi fram að jólum.. við krakkarnir vorum komin í jólafrí helgina fyrir jól. jólin voru yndisleg, lísa frænka kom óvænt til okkar á þorláksmessu og var hér næstum fram á gamlársdag. krakkarnir fóru svo til pabba síns eftir jól og við fórum með jón í bústaðinn og vorum þar yfir áramótin. það var rosalega mikið frost úti en yndislegt að fara í pottinn á kvöldin og horfa upp í stjörnuhimininn og sjá norðurljósin sum kvöld. áramótin voru rosalega róleg en nokkrir bústaðagestir skutu upp flugeldum eins og við.
jón byrjaði í íþróttaskólanum eftir áramót og elskar það út af lífinu. þetta er ótrúlega skemmtilegt og byggir börnin vel upp og undirbýr þau undir alls konar íþróttaiðkun seinna meir, kennir þeim að hlusta á og hlýða þjálfaranum og vinna með hópi
honum langaði líka að fara að æfa fótbolta eins og stóri brósi svo við fórum með hann á æfingu hjá 8. flokki breiðablik en hann var ekki tilbúinn fyrir það, reynum bara aftur í sumar eða jafnvel haust. þá er hann líka í réttum aldurshópi.
jæja þetta var ágætis upprifjun á liðnu ári, margt búið að gerast og hellingur meira en er hér talið upp..en aldrei að vita nema það verði skellt inn færslu áður en langt um líður..endilega vera dugleg að kvitta ef þú kikir hér inn
jaá sæællll, eigum við að ræða þetta eitthvað??
By prakk0 on Dec 31, 2008 | In Prakkarar | 2 feedbacks »
afmæli jóns liðið.. hann fékk fullt af fallegum gjöfum og t.d gröfu frá ömmu betu, stórann leiftur mcqueen frá okkur, lítin krók (úr cars) frá kötu, föt frá sigríðar fjölskyldu og lísu og afa og ömmu í skriðuseli.. í heild var þetta hinn ánægjulegasti dagur þó mamma og pabbi væru útkeyrð eftir hann
en það fylgir bara 
nú jólin eru líka liðin og í jólagjöf fékk jón: stóran krók (sem passar við stóra leiftur) brunabíl, bækur, föt, sæng og kodda og sængurföt, ullarsokka og vettlinga, annan lítinn krók, ævintýradisk, náttföt og margt fleira..
katrín fékk bara föt, enda nýtist það okkur best. Hún fékk t.d þrenn náttföt, 5 sokkabuxur, tvenn nærföt, þrennar buxur, fjórar peysur/peysuboli og tvö pör af ullasokkum og tvö pör af vettlingum og þetta eru allt saman svo falleg föt
við erum nú þegar búin að nota helling af þessum fötum því það er svo gaman að vera í nýju og fallegu ![]()
kristofer fékk heilan haug, m.a transformers kall og tvo ps2 leiki, fullt af fötum og ullarsokkum og vettlingum, margar bækur, m.a ripleys belive it or not og heimsmetabók guinnes, tvær skúla skelfir bækur og ævintýraeyjan og ævintýralandið, legó og bionicle, og tvo litla transformer kalla.. og svo munum við ekki meira en þetta er bara það sem hann fékk hjá okkur.. hann og katrín fengu bæði alveg helling af jólagjöfum hjá pabba sínum líka.
ég og krissi ákváðum nefnilega að fara ekki með neinar jólagjafir þessi jól til pabba þeirra, heldur geyma allt þangað til þau kæmu heim aftur og halda önnur jól saman. það var frábært, við áttum öll einhverja pakka eftir og jón fór alveg á flug í pakkaopnun..
í byrjun des tókum við okkur til og máluðum alla íbúðina, tók það hálfan dag (að mála) þó að með undirbúningi hafi þetta tekið einn og hálfan dag. við vorum svo eiginlega alveg að jólum að ganga frá öllu aftur og koma í fínt form. einhvern vegin er alltaf auðveldara að rusla til heldur en að laga til ( eins og það er auðveldara að skulda en safna pening og fitna en grennast ) en í leiðinni var allt tekið í gegn, öllu ónauðsynlegu hent í burtu eða sett í geymslu og núna er bara nett naumhyggja í gangi hér hehe, allavega er allt voða fínt og strokið hjá okkur.
aðalatriðið í tiltektinni var að færa krakkana saman í hjónaherbergið. við keyptum koju handa strákunum og katrín er auðvitað í sínu rúmi ennþá. settum svo sjónvarp og vídeo, dvd og tölvuna hans kris upp og núna er þetta sannkölluð paradís fyrir krissa. við eigum þó eftir að setja upp hillur og fleira smálegt fyrir krissa og allt hans dót en hann er sáttur þó hann deili herbergi með systkinum sínum.
síðasta mánudag fórum við á flugeldasýningu hjá perlunni og dáðumst að fallegum bombum. jón var ekki alveg viss hvernig hann átti að taka þessu en við kepptumst svo við að dást að flugeldunum að hann var farinn að fíla þetta í lokin.. og enn meira á leiðinni heim 
núna eru svo áramótin að bresta á.. einungis nokkrir klukkutímar eftir af árinu 2008 og við munum kveðja með hvelli
við fórum eftir flugeldasýninguna og keyptum bombur. planið er að jón og katrín muni vaka nógu lengi til að sjá flugeldaflóðið um áramótin. síðast þegar katrín og kris voru með okkur um áramót vorum við fyrir norðan og hún hló og hló að þessu öllu saman.. þá var jón nýfæddur og svaf allt af sér í kengúrupokanum framan á mér
jæja, við hér í rjúpnasölum 10, óskum öllum gleðilegs nýs og farsæls árs.
reytingur héðan og þaðan
By prakk0 on Oct 29, 2008 | In Prakkarar | 5 feedbacks »
já jón kallinn er kominn á leikskólann rjúpnahæð. gekk rosa vel til að byrja með, svo tók hann ca. viku í að gráta þegar við fórum og núna hleypur hann inn og nær sér í dót.
ég fann tvo hnúða í hálsinum á honum, fór með hann til læknis á þriðjudaginn og kom í ljós að þetta eru bólgnir kirtlar. sverrir pantaði svo tíma fyrir jón hjá háls,nef og eyrnalækni og fékk tíma í dag. greining frá einari ólafs að það þarf að setja rör og taka nefkirtla.. þessir hnúðar eru allt í lagi, sérstalega út af eyrnabólgunni.
katrín var í vetrarfríi síðustu helgi, var frá fimmtudegi til mánudags. við mæðgur vorum saman heima fimmtudag og föstudag og notuðum tækifærið til að fara í verslunarmiðstöðvarnar og kaupa jólagjafir. rosa gott að komast að versla þegar allir aðrir eru að vinna. núna erum við búin að kaupa 5 jólagjafir og búin að ákveða 4 í viðbót, erum bara að bíða eftir næstu mánaðarmótum til að kaupa þær
þá er bara eftir að kaupa handa krökkunum okkar og þá erum við búin - eigum semst eftir að kaupa 7 jólagjafir. við erum einnig búin að ákveða að vera nísk þessi jól og ekki hafa myndajólakort, ætlum bara að skrifa fallega kveðju. en aftur að katrínu, hún fór í klippingu á mánudaginn, var sennilega tekið um 5-7 cm af síddinni og toppurinn styttur um 2cm þannig að daman sér eitthvað út um lokkaflóðið. það var orðið erfitt að halda hárinu á henni úr matnum, það var orðið svo sítt. hún er líka búin að missa einn einn jaxlinn og á held ég bara eftir að missa 4-5 barnatennur í viðbót. hún og kristofer eru einnig í vörtumeðferð. katrín greyið er með flökku/frauðvörtur undir handakrikunum og kristofer er með nokkrar í hnésbótinni og svo 4 stórar venjulegar vörtur á táberginu. hann er búinn að vera í meðferð út af þeim í rúmt ár og gengur voða hægt að losna við þær. "góðir hlutir gerast hægt" höldum bara fast í þetta máltak.
krisofer er einnig farinn að æfa fimleika tvisvar í viku og skák einu sinni í viku þannig að það er nóg að gera hjá honum milli heimalærdóms og að leika sér.. hann er rosa duglegur strákur og farinn að muna eftir öllum reglunum sem við leggjum á hann.. muna eftir lyklunum sínum, passa að allt komi heim úr skólanum, hringja og láta vita af sér þegar hann fer eitthvað og spyrja leyfis hvort þessi og hinn megi koma og leika inni hjá okkur.. svona basic dæmi en fór alveg með hann í byrjun skólaárs.. hann fór einnig í fyrstu rútuferðina sína til bifrastar til pabba síns og gekk það rosa vel. ég nestaði hann í ferðina með rækjusamloku og svala og svo fékk hann smá nammistykki líka. sverrir sótti hann svo á sunnudagskvöldið og fékk fréttir af honum frá konu sem sat við hliðina á honum á leiðina í borgina. hún sagði sverri að þegar rútan lagði af stað þá hefði minn lygnt aftur augunum og hallað sér að henni og hrotið alla leiðina heim
henni fannst þetta svo krúttlegt og fór alveg í ömmufílinginn 
síðasta laugardag fórum við í heljar göngutúr/sleðaferð með krakkana. kris og jón deildu sleðanum hans kristofers og katrín hjálpaði mér að ýta kerrunni hennar. svo fóru strákarnir að renna sér í brekkunum og sverrir með þeim og við katrín tókum myndir á meðan, síðan fékk daman að fara nokkrar ferðir með pabba og fannst það svona líka gaman.. en á endanum var kuldaboli búinn að nuddast of fast við kinnarnar og við urðum að fara inn... enda líka kominn hádegismatur
það var nú voða gott að fara inn í hlýjuna og fá gott í bambann.
en kristofer er að fara í vetrarfrí á morgun og föstudag og hann er sko búinn að ákveða að koma með mér í vinnuna. ekkert eins gaman og að fá að leika í tölvunni allan daginn og fara í kakóvélina til að fá sér heitt og gott kakó..
en látum þetta gott heita í bili, verðum í bandi - þangað til næst
kveðja prakkararnir
Jón á leikskóla
By prakk0 on Sep 23, 2008 | In Prakkarar | 1 feedback »
Jón er núna byrjaður í aðlögun á leikskólanum Rjúpnahæð. Hann fór í klukkutíma í gær svona heimsókn og svo fer hann aftur í c.a. klukkutíma í dag. Og á morgun þá fer hann í 2 tíma og hádegismat. Svo bættist smátt og smátt í þetta. En miðað við fyrstu heimsókn þá mun þetta ganga vel því ég þurfti að draga hann útaf leikskólanum vildi sko ekkert koma með mér heim. Fórum svo upp bústað með dót sem Afi gleymdi að taka með sér. Krissi og Katrín eru alltaf í skólanum og gengur bara vel. Krissi er búinn að vera sérstaklega duglegur að koma heim á réttum tíma og láta af sér.
halló hæ
By prakk0 on Aug 13, 2008 | In Prakkarar | Send feedback »
já já long time no blog...
ég veit ég veit við erum ekkert búin að vera dugleg
en við erum búin að copera allar myndirnar mínar
og þar með er verkið komið áleiðis.. þetta eru nú bara 25 gíg af ljósmyndum þannig að það er ekkert mál.. not
en yfir í fréttir af krökkunum. jón er alveg að fara að byrja á leikskóla. það verður sennilega núna í ágúst eða byrjun sept, verður eiginlega að vera í ágúst því dagmamman er að fara í sumarfrí frá 1. sept til 8. okt og er að fara í reisu til ástralíu.. hún er löngu búin að tilkynna öllum um þetta þannig að þetta eru engar nýjar fréttir en ýtir bara undir að hann verður að komast inn á leikskólann. það verður enginn smá munur. leikskólinn er við hliðina á okkur þannig að maður sparar haug af tíma og helling af peningum í leiðinni
annars er jón algjör dúllurass eins og vanalega. hann er voða duglegur að deila með sér og ef hann fær nammi (td. seríos í skál eða bláber/vínber) þá er hann svo góður að gefa katrínu og krissa með sér og maður þarf eiginlega að passa að hann fái eitthvað sjálfur
svo er hann að æfa sig í enskunni
segir lovjú og liverpool og æfir nöfnin á leikmönnunum með pabba sínum
bara dúllur.
við vorum 3 saman í sumarfríi meðan stóru fóru í frí til pabba síns og það var voða notalegt. gott að vera stundum bara 3 saman. við eyddum fyrri vikunni í að laga til heima, hreinsa út úr geymslunni og þvottahúsinu og á meðan var jón hjá dagmömmunni, svo seinni vikuna vorum við alveg límd saman og kíktum á ömmu og afa í skriðuseli og fórum í sumarbústaðinn á fimmtudeginum. katrín kom svo og hitti okkur á þingvöllum og fór með okkur í bústaðinn eftir fríið sitt hjá stefáni en kristofer er enn hjá afa sínum og ömmu fyrir austan, á vopnafirði.
greyið er samt farið að leiðast þarna fyrir austan og vill fara að komast heim, leika með vinunum síðustu dagana fyrir skólann og knúsa okkur familíuna. hann saknar okkar og við söknum hans
æ mig langar líka bara að fá hann heim.. hann er búinn að vera svo mikið frá okkur í sumar og mér finnst bara vera kominn tími á að fá hann til okkar
hann er líka orðinn illa spenntur fyrir að fara að byrja í 4. bekk og í haust er hann að fara að taka fyrstu samræmdu prófin sín, í stærðfræði og íslensku svo það verður spennandi að sjá hvernig það fer. svo er pabbi þeirra fluttur á bifröst þannig að það verður eitthvað gaman að sjá hvernig pabbahelgarnar verða
kannski rútuferðir fram og til baka eða að hann nái í þau heim til okkar og skili aftur.. gaman það!
eins og áður sagði kom katrín heim á föstudaginn síðasta og vorum við þá í bústaðnum. daman var komin með slæma sýkingu undir handakrikana og exem ofan í það þannig að við rukum með hana til læknis á sunnudeginum til að fá eitthvað við þessu. Læknirinn talaði um að svona sýkingar séu algengar eftir heitapotta. hún er allavega öll á batavegi greyið en þetta voru orðin ljót sár undir öðrum krikanum og stefndi í það sama undir hinum
var að fá hringingu frá stebba um að kris er að koma heim með flugi á eftir.. hlakka bara til, og guttinn fær að verja seinnipartinum í vinnunni með mér. honum finnst það ekki slæmt því hann má fara í kakóvélina og í ávaxtaskálina og í tölvuna þannig að þetta er bara draumur í dós 
en vinnan kallar, verð í bandi seinna
