í sumarfrí er gaman, þá leika allir saman....
By prakk0 on Jul 27, 2008 | In Prakkarar | 6 feedbacks »
lalalalalala
jább, krissi og katrín eru komin í sumarfrí til pabba síns og fóru austur á land í gær, alla leið til vopnafjarðar þar sem afi þeirra býr. vonandi bara að þau njóti hitans og sólarinnar sem hefur verið að glenna sig þar eins og einhver bjáni
hún (sólin) veit nottlega ekki að það er miklu mikilvægara að skína á reykjavíkurhorninu 
nú hann jón pétur (peddilee) er að brillera í íslenskunni. ég sver að barnið verður orðið altalandi um 2 ára aldurinn
hann er alltaf að bæta í orðaforðann og apa upp eftir okkur.. er samt með pínu gormæltan hreim eða smá franskann.. man auðvitað engin dæmi til að útskýra en hann er snilld drengurinn..
dagmamman spurði okkur á fimmtudaginn hvernig við skömmum drenginn og fáum hann til að hlýða, við sögðum henni að ef þetta er major alvarlegt og jón er ekki að taka sönsum
þá er honum hent í rúmið sitt í skammarkrók í 2 mín og nottlega sagt af hverju hann fer þangað, annars látum við nægja að garga á hann að hætta þessu og hlíða okkur.. þetta er ekki að virka hjá dagmömmunni og hún spurði dóttur sína ráða (sem er barnasálfræðingur) og sú benti henni á að setjast í sófann og láta hann sitja á gólfinu og halda honum með fótunum, útskýra fyrir honum að hún ráði og hann eigi að hlýða og þetta eigi að standa yfir í 2 mín.. minn varð nottlega bilaður og öskraði alveg en eftir mínúturnar þá varð minn bljúgur sem lamb.. ekki málið að hlýða henni röggu sinni.. bara eins og hann hefði aldrei gert annað
við fórum með krakkaskarann í klippingu og sverrir fór líka.. kostaði rétt rúmar 12 þúsund að klippa 4 hausa.. ég verð nú bara að segja að ég er nokkuð sátt með það.. enda hefur það verið að kosta mig um 21 þús max að láta klippa og lita mitt hár.. enda fer ég þangað ekki lengur..
jæja við erum semst komin í sumarfrí og núna er stefnan sett á að fara að hlaða inn myndum alveg í gríð og erg.. þangað til næst.. hold on tight.. og kvittið fyrir komuna takk 
6 comments
Gaman að sjá nýju síðuna, bíðum eftir myndum.
Kv. Fanney og bumbus
Sjálf á ég nokkrar myndir handa ykkur, látið mig bara vita hvað þið viljið gera með þær!
Ohh það verður nú gott að komast í mat í rjúpnasölum aftur í vetur! Þið eruð svo æðisleg =)
love you, frænkan í london.
Fatal error: Allowed memory size of 8388608 bytes exhausted (tried to allocate 184320 bytes) in /home/prakk0/public_html/conf/_icons.php on line 511
