halló hæ
By prakk0 on Aug 13, 2008 | In Prakkarar | Send feedback »
já já long time no blog...
ég veit ég veit við erum ekkert búin að vera dugleg
en við erum búin að copera allar myndirnar mínar
og þar með er verkið komið áleiðis.. þetta eru nú bara 25 gíg af ljósmyndum þannig að það er ekkert mál.. not
en yfir í fréttir af krökkunum. jón er alveg að fara að byrja á leikskóla. það verður sennilega núna í ágúst eða byrjun sept, verður eiginlega að vera í ágúst því dagmamman er að fara í sumarfrí frá 1. sept til 8. okt og er að fara í reisu til ástralíu.. hún er löngu búin að tilkynna öllum um þetta þannig að þetta eru engar nýjar fréttir en ýtir bara undir að hann verður að komast inn á leikskólann. það verður enginn smá munur. leikskólinn er við hliðina á okkur þannig að maður sparar haug af tíma og helling af peningum í leiðinni
annars er jón algjör dúllurass eins og vanalega. hann er voða duglegur að deila með sér og ef hann fær nammi (td. seríos í skál eða bláber/vínber) þá er hann svo góður að gefa katrínu og krissa með sér og maður þarf eiginlega að passa að hann fái eitthvað sjálfur
svo er hann að æfa sig í enskunni
segir lovjú og liverpool og æfir nöfnin á leikmönnunum með pabba sínum
bara dúllur.
við vorum 3 saman í sumarfríi meðan stóru fóru í frí til pabba síns og það var voða notalegt. gott að vera stundum bara 3 saman. við eyddum fyrri vikunni í að laga til heima, hreinsa út úr geymslunni og þvottahúsinu og á meðan var jón hjá dagmömmunni, svo seinni vikuna vorum við alveg límd saman og kíktum á ömmu og afa í skriðuseli og fórum í sumarbústaðinn á fimmtudeginum. katrín kom svo og hitti okkur á þingvöllum og fór með okkur í bústaðinn eftir fríið sitt hjá stefáni en kristofer er enn hjá afa sínum og ömmu fyrir austan, á vopnafirði.
greyið er samt farið að leiðast þarna fyrir austan og vill fara að komast heim, leika með vinunum síðustu dagana fyrir skólann og knúsa okkur familíuna. hann saknar okkar og við söknum hans
æ mig langar líka bara að fá hann heim.. hann er búinn að vera svo mikið frá okkur í sumar og mér finnst bara vera kominn tími á að fá hann til okkar
hann er líka orðinn illa spenntur fyrir að fara að byrja í 4. bekk og í haust er hann að fara að taka fyrstu samræmdu prófin sín, í stærðfræði og íslensku svo það verður spennandi að sjá hvernig það fer. svo er pabbi þeirra fluttur á bifröst þannig að það verður eitthvað gaman að sjá hvernig pabbahelgarnar verða
kannski rútuferðir fram og til baka eða að hann nái í þau heim til okkar og skili aftur.. gaman það!
eins og áður sagði kom katrín heim á föstudaginn síðasta og vorum við þá í bústaðnum. daman var komin með slæma sýkingu undir handakrikana og exem ofan í það þannig að við rukum með hana til læknis á sunnudeginum til að fá eitthvað við þessu. Læknirinn talaði um að svona sýkingar séu algengar eftir heitapotta. hún er allavega öll á batavegi greyið en þetta voru orðin ljót sár undir öðrum krikanum og stefndi í það sama undir hinum
var að fá hringingu frá stebba um að kris er að koma heim með flugi á eftir.. hlakka bara til, og guttinn fær að verja seinnipartinum í vinnunni með mér. honum finnst það ekki slæmt því hann má fara í kakóvélina og í ávaxtaskálina og í tölvuna þannig að þetta er bara draumur í dós 
en vinnan kallar, verð í bandi seinna
No feedback yet
Leave a comment
| « Jón á leikskóla | í sumarfrí er gaman, þá leika allir saman.... » |
