jaá sæællll, eigum við að ræða þetta eitthvað??
By prakk0 on Dec 31, 2008 | In Prakkarar | 2 feedbacks »
afmæli jóns liðið.. hann fékk fullt af fallegum gjöfum og t.d gröfu frá ömmu betu, stórann leiftur mcqueen frá okkur, lítin krók (úr cars) frá kötu, föt frá sigríðar fjölskyldu og lísu og afa og ömmu í skriðuseli.. í heild var þetta hinn ánægjulegasti dagur þó mamma og pabbi væru útkeyrð eftir hann
en það fylgir bara 
nú jólin eru líka liðin og í jólagjöf fékk jón: stóran krók (sem passar við stóra leiftur) brunabíl, bækur, föt, sæng og kodda og sængurföt, ullarsokka og vettlinga, annan lítinn krók, ævintýradisk, náttföt og margt fleira..
katrín fékk bara föt, enda nýtist það okkur best. Hún fékk t.d þrenn náttföt, 5 sokkabuxur, tvenn nærföt, þrennar buxur, fjórar peysur/peysuboli og tvö pör af ullasokkum og tvö pör af vettlingum og þetta eru allt saman svo falleg föt
við erum nú þegar búin að nota helling af þessum fötum því það er svo gaman að vera í nýju og fallegu ![]()
kristofer fékk heilan haug, m.a transformers kall og tvo ps2 leiki, fullt af fötum og ullarsokkum og vettlingum, margar bækur, m.a ripleys belive it or not og heimsmetabók guinnes, tvær skúla skelfir bækur og ævintýraeyjan og ævintýralandið, legó og bionicle, og tvo litla transformer kalla.. og svo munum við ekki meira en þetta er bara það sem hann fékk hjá okkur.. hann og katrín fengu bæði alveg helling af jólagjöfum hjá pabba sínum líka.
ég og krissi ákváðum nefnilega að fara ekki með neinar jólagjafir þessi jól til pabba þeirra, heldur geyma allt þangað til þau kæmu heim aftur og halda önnur jól saman. það var frábært, við áttum öll einhverja pakka eftir og jón fór alveg á flug í pakkaopnun..
í byrjun des tókum við okkur til og máluðum alla íbúðina, tók það hálfan dag (að mála) þó að með undirbúningi hafi þetta tekið einn og hálfan dag. við vorum svo eiginlega alveg að jólum að ganga frá öllu aftur og koma í fínt form. einhvern vegin er alltaf auðveldara að rusla til heldur en að laga til ( eins og það er auðveldara að skulda en safna pening og fitna en grennast ) en í leiðinni var allt tekið í gegn, öllu ónauðsynlegu hent í burtu eða sett í geymslu og núna er bara nett naumhyggja í gangi hér hehe, allavega er allt voða fínt og strokið hjá okkur.
aðalatriðið í tiltektinni var að færa krakkana saman í hjónaherbergið. við keyptum koju handa strákunum og katrín er auðvitað í sínu rúmi ennþá. settum svo sjónvarp og vídeo, dvd og tölvuna hans kris upp og núna er þetta sannkölluð paradís fyrir krissa. við eigum þó eftir að setja upp hillur og fleira smálegt fyrir krissa og allt hans dót en hann er sáttur þó hann deili herbergi með systkinum sínum.
síðasta mánudag fórum við á flugeldasýningu hjá perlunni og dáðumst að fallegum bombum. jón var ekki alveg viss hvernig hann átti að taka þessu en við kepptumst svo við að dást að flugeldunum að hann var farinn að fíla þetta í lokin.. og enn meira á leiðinni heim 
núna eru svo áramótin að bresta á.. einungis nokkrir klukkutímar eftir af árinu 2008 og við munum kveðja með hvelli
við fórum eftir flugeldasýninguna og keyptum bombur. planið er að jón og katrín muni vaka nógu lengi til að sjá flugeldaflóðið um áramótin. síðast þegar katrín og kris voru með okkur um áramót vorum við fyrir norðan og hún hló og hló að þessu öllu saman.. þá var jón nýfæddur og svaf allt af sér í kengúrupokanum framan á mér
jæja, við hér í rjúpnasölum 10, óskum öllum gleðilegs nýs og farsæls árs.
2 comments
Leave a comment
| « öööööööö svolítið langt síðan síðast ;) | reytingur héðan og þaðan » |
