öööööööö svolítið langt síðan síðast ;)
By prakk0 on Jan 26, 2010 | In Prakkarar | Send feedback »
en þannig er það nú bara...
ótrúlega margt í fréttum en ég man ekki neitt af því, allavega ekkert frá því ég skrifaði síðast hehe... það sem er svona nýlegra í fréttum er að krissi er farinn að æfa fótbolta m. 5. flokki breiðablik og gengur bara alveg ljómandi vel. það eru allir strákarnir í bekknum að æfa og líka flest allir strákarnir úr salaskóla sem hann er alltaf með þannig að hann á næga vini þar, og bað um það þegar hann kom heim af æfingu í gær hvort hann mætti fara á goðamótið sem er í lok febrúar.. sé ekkert að því ![]()
nú, það eru allir búnir að eiga afmæli síðan síðustu skrif voru birt og meira segja eiga tvenn jól þannig að heilmargt hefur gerst.. ef ég reyni að tipla á því stærsta þá t.d átti kristofer 10 ára afmæli í mars í fyrra og hélt það í álfabakka þar sem við horfðum á ævintýri desperoux? ásamt öllum strákunum í bekknum og nokkrum fleiri. allir fengu popp og kók og skemmtu sér ljómandi vel.
í apríl fluttum við úr rjúpnasölunum og fluttum "alla leið" yfir í ásakórinn, ca. 700 metrar sem skilja þessar blokkir að. en munurinn á húsnæðinu er nú öllu meiri og betri en við fórum úr 3 herbergja í 5 herbergja og hreiðrum nú um okkur í 200fm2 með bílskúr og auka geymslu. núna eiga allir sitt herbergi nema við hjónin sem verðum víst að deila áfram hehe.
í maí byrjun giftum við sverrir okkur og vorum með stóra veislu fyrir alla vini okkar og fjölskylduna. þessi dagur var yndislegur og lukkaðist frábærlega og líður hratt að ársafmælinu
í júní átti katrín mín 9 ára afmæli. við héltum grillveislu fyrir fjölskylduna en slepptum bekkjarafmælinu þar sem við vorum ekki búin að koma okkur almennilega fyrir..það verður bara glæsilegt afmæli haldið í ár fyrir prinsessuna á heimilinu.
í júlí ferðaðist fjölskyldan slatta, stóru krakkarnir fóru til pabba síns og við norður á land og austur fyrir fjall í bústaðinn, yndislegt að geta farið alltaf í bústaðinn. lísa frænka kom til okkar og var á landinu í rúmar 2 vikur.
í ágúst fórum við sverrir til london og vorum 2 daga hjá lísu og 2 daga á hóteli..fórum á U2 tónleika og ætluðum á liverpool leik en hann var of seint á heimfarardeginum. við sáum alla leikmennina samt labba hinum megin við götuna inn á hótelið sitt og var sverrir alveg í skýjunum með það
skólinn byrjaði líka aftur í ágúst og var krissi að byrja í nýjum skóla. var ekki laust við það að honum kviði örlítið fyrir en það hefur gengið ljómandi vel hjá honum í nýja skólanum.
september leið hratt hjá, ég varð matráður í vinnunni minni og líkar það ljómandi vel.
sverrir hélt upp á afmælið sitt í október og fórum við í bústaðinn með vinum og áttum yndislega helgi saman.
jón pétur varð 3 ára í nóvember og var afmælisveisla hér heima með fjölskyldunni og svo eitthvað smá í leikskólanum. sá stutti var alsæll með kórónuna sem hann fékk hjá þeim í leikskólanum.
og þá var komið að desember. við vorum loksins búin að safna fyrir sófa i sjónvarpsholið og fengum hann í byrjun des, jólaundirbúningur hófst og glögg og litlujól voru um hverja helgi fram að jólum.. við krakkarnir vorum komin í jólafrí helgina fyrir jól. jólin voru yndisleg, lísa frænka kom óvænt til okkar á þorláksmessu og var hér næstum fram á gamlársdag. krakkarnir fóru svo til pabba síns eftir jól og við fórum með jón í bústaðinn og vorum þar yfir áramótin. það var rosalega mikið frost úti en yndislegt að fara í pottinn á kvöldin og horfa upp í stjörnuhimininn og sjá norðurljósin sum kvöld. áramótin voru rosalega róleg en nokkrir bústaðagestir skutu upp flugeldum eins og við.
jón byrjaði í íþróttaskólanum eftir áramót og elskar það út af lífinu. þetta er ótrúlega skemmtilegt og byggir börnin vel upp og undirbýr þau undir alls konar íþróttaiðkun seinna meir, kennir þeim að hlusta á og hlýða þjálfaranum og vinna með hópi
honum langaði líka að fara að æfa fótbolta eins og stóri brósi svo við fórum með hann á æfingu hjá 8. flokki breiðablik en hann var ekki tilbúinn fyrir það, reynum bara aftur í sumar eða jafnvel haust. þá er hann líka í réttum aldurshópi.
jæja þetta var ágætis upprifjun á liðnu ári, margt búið að gerast og hellingur meira en er hér talið upp..en aldrei að vita nema það verði skellt inn færslu áður en langt um líður..endilega vera dugleg að kvitta ef þú kikir hér inn
No feedback yet
Leave a comment
| jaá sæællll, eigum við að ræða þetta eitthvað?? » |
