í sumarfrí er gaman, þá leika allir saman....
By prakk0 on Jul 27, 2008 | In Prakkarar | 6 feedbacks »
lalalalalala
jább, krissi og katrín eru komin í sumarfrí til pabba síns og fóru austur á land í gær, alla leið til vopnafjarðar þar sem afi þeirra býr. vonandi bara að þau njóti hitans og sólarinnar sem hefur verið að glenna sig þar eins og einhver bjáni
hún (sólin) veit nottlega ekki að það er miklu mikilvægara að skína á reykjavíkurhorninu 
nú hann jón pétur (peddilee) er að brillera í íslenskunni. ég sver að barnið verður orðið altalandi um 2 ára aldurinn
hann er alltaf að bæta í orðaforðann og apa upp eftir okkur.. er samt með pínu gormæltan hreim eða smá franskann.. man auðvitað engin dæmi til að útskýra en hann er snilld drengurinn..
dagmamman spurði okkur á fimmtudaginn hvernig við skömmum drenginn og fáum hann til að hlýða, við sögðum henni að ef þetta er major alvarlegt og jón er ekki að taka sönsum
þá er honum hent í rúmið sitt í skammarkrók í 2 mín og nottlega sagt af hverju hann fer þangað, annars látum við nægja að garga á hann að hætta þessu og hlíða okkur.. þetta er ekki að virka hjá dagmömmunni og hún spurði dóttur sína ráða (sem er barnasálfræðingur) og sú benti henni á að setjast í sófann og láta hann sitja á gólfinu og halda honum með fótunum, útskýra fyrir honum að hún ráði og hann eigi að hlýða og þetta eigi að standa yfir í 2 mín.. minn varð nottlega bilaður og öskraði alveg en eftir mínúturnar þá varð minn bljúgur sem lamb.. ekki málið að hlýða henni röggu sinni.. bara eins og hann hefði aldrei gert annað
við fórum með krakkaskarann í klippingu og sverrir fór líka.. kostaði rétt rúmar 12 þúsund að klippa 4 hausa.. ég verð nú bara að segja að ég er nokkuð sátt með það.. enda hefur það verið að kosta mig um 21 þús max að láta klippa og lita mitt hár.. enda fer ég þangað ekki lengur..
jæja við erum semst komin í sumarfrí og núna er stefnan sett á að fara að hlaða inn myndum alveg í gríð og erg.. þangað til næst.. hold on tight.. og kvittið fyrir komuna takk 
smá fréttir af prökkurum
By prakk0 on Jul 21, 2008 | In Prakkarar | 2 feedbacks »
katrín: í þar síðustu viku (á fimmtudeginum) kom katrín heim með klór aftan á hálsinum,
frekar slæmt klór en það var ekkert hægt að gera nema setja smyrsl á það og hjálpa því að gróa. allavega, á föstudagskvöld tókum við eftir því að langatöng á hægri hendi var bólgin alveg við nöglina. við tókum okkur til og náðum að kreista smá gröft út og sprittuðum svo og gerðum allt fínt.. fórum svo í síðustu viku til læknis og fengum sýklalyf handa henni.. þetta var ekkert alveg að virka sem við gerðum og fingurinn var ekkert að batna. en núna er þetta allt að koma hjá henni
það er allt glimrandi í vesturhlíð. hún er að fara í bátsferðir, fjöruferðir, göngutúra og í nauthólsvík. það eru alltaf sundferðir á miðvikudögum og grillað á föstudögum svo það er nóg að gera. hún er samt að fara í frí frá og með næsta mánudegi í 2 vikur svo þá getur hún slakað aðeins á og notið sín í sólbaði eða eitthvað 
kristofer: hann fór til mallorca í 3 vikur með pabba sinum og fjölskyldu hans. hann kom heim súkkulaðibrúnn og sætur og með alveg snjóhvítt hár. ég leyfði honum að fara út með olympus myndavélina mína og drengurinn tók 245 myndir. svo sem ekkert allar frábærar en rosalega margar góðar og fullt af spennandi sjónarhornum hjá honum. hann er líka að fara í frí aftur með pabba sínum eins og katrín í 2 vikur. krissi fór á leikjanámskeið í sumar og fílaði það fínt, vildi samt frekar fara á siglinganámskeið eða smíðanámskeiðið en það fyrra var fullt og það seinna er hann of ungur í svo næsta sumar er séns að koma honum að![]()
jón pétur: er alltaf jafn mikið krútt. hann kom í kvöld og skreið í fangið á mér. ég var að horfa á tv og litli ekki sáttur með þessa litlu athygli. hann tók um kinnarnar á mér og sagði alltaf mamma mamma mamma og kyssti mig svo.. greyið veit alveg hvernig á að fá smá athygli.. bara kyssa mömmu og þá á hann mig skuldlaust ( ég er nebblega alltaf að biðja um koss og hann segir alltaf nei, nema þegar hann getur nýtt sér það svona )
hann er ótrúlegur mathákur á allt nema það sem er í matinn. hann biður alltaf um gúrt eða bana sem eru jógúrt og banani og svo þegar hann fer að sofa þá er það gónótt grafa, gónótt bíllinn, gónótt allir og gerir fingurkoss til allra sem sitja í stofunni
bara dúlla
jæja það er kominn háttatími svo ég læt þetta duga í bili
jæja já, fyrsta almennilega færslan
By prakk0 on Jul 21, 2008 | In Prakkarar | Send feedback »
þá erum við búin að stofna nýja heimasíðu fyrir gríslingana okkar
og eru hinar síðurnar semst ekki lengur í notkun.. er stefnan sett á að hlaða inn helling af myndum og vera vonandi dugleg að blogga um afrek prakkaranna
fyrir hönd prakkaranna, sandra
