• 3 systkin
  • Einarsson

3 systkin

  • Home
  • Contact
  • Log in
  • July 2009
    Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
     << <   > >>
          1 2 3 4
    5 6 7 8 9 10 11
    12 13 14 15 16 17 18
    19 20 21 22 23 24 25
    26 27 28 29 30 31  
  • 3 systkin

    • Recently
    • Archives
    • Categories
    • Latest comments
  • Search

  • 3 systkin

  • Tenglar

    • Fjölskyldan
      • Benedikt Gylfi
      • Myndasíða Prakkaranna
  • Afmæli Jóni

    Dagar í afmæli hjá Jóni 7 months and 29 days
  • Afmæli hjá Katrínu

    Dagar í afmæli hjá Katrínu 1 month
  • Afmæli Kristófer

    Dagar í afmæli hjá Kristófer 3 months and 17 days

jaá sæællll, eigum við að ræða þetta eitthvað??

By prakk0 on Dec 31, 2008 | In Prakkarar | 2 feedbacks »

afmæli jóns liðið.. hann fékk fullt af fallegum gjöfum og t.d gröfu frá ömmu betu, stórann leiftur mcqueen frá okkur, lítin krók (úr cars) frá kötu, föt frá sigríðar fjölskyldu og lísu og afa og ömmu í skriðuseli.. í heild var þetta hinn ánægjulegasti dagur þó mamma og pabbi væru útkeyrð eftir hann XX( en það fylgir bara :yes:

nú jólin eru líka liðin og í jólagjöf fékk jón: stóran krók (sem passar við stóra leiftur) brunabíl, bækur, föt, sæng og kodda og sængurföt, ullarsokka og vettlinga, annan lítinn krók, ævintýradisk, náttföt og margt fleira..

katrín fékk bara föt, enda nýtist það okkur best. Hún fékk t.d þrenn náttföt, 5 sokkabuxur, tvenn nærföt, þrennar buxur, fjórar peysur/peysuboli og tvö pör af ullasokkum og tvö pör af vettlingum og þetta eru allt saman svo falleg föt :P við erum nú þegar búin að nota helling af þessum fötum því það er svo gaman að vera í nýju og fallegu :D

kristofer fékk heilan haug, m.a transformers kall og tvo ps2 leiki, fullt af fötum og ullarsokkum og vettlingum, margar bækur, m.a ripleys belive it or not og heimsmetabók guinnes, tvær skúla skelfir bækur og ævintýraeyjan og ævintýralandið, legó og bionicle, og tvo litla transformer kalla.. og svo munum við ekki meira en þetta er bara það sem hann fékk hjá okkur.. hann og katrín fengu bæði alveg helling af jólagjöfum hjá pabba sínum líka.

ég og krissi ákváðum nefnilega að fara ekki með neinar jólagjafir þessi jól til pabba þeirra, heldur geyma allt þangað til þau kæmu heim aftur og halda önnur jól saman. það var frábært, við áttum öll einhverja pakka eftir og jón fór alveg á flug í pakkaopnun..

í byrjun des tókum við okkur til og máluðum alla íbúðina, tók það hálfan dag (að mála) þó að með undirbúningi hafi þetta tekið einn og hálfan dag. við vorum svo eiginlega alveg að jólum að ganga frá öllu aftur og koma í fínt form. einhvern vegin er alltaf auðveldara að rusla til heldur en að laga til ( eins og það er auðveldara að skulda en safna pening og fitna en grennast ) en í leiðinni var allt tekið í gegn, öllu ónauðsynlegu hent í burtu eða sett í geymslu og núna er bara nett naumhyggja í gangi hér hehe, allavega er allt voða fínt og strokið hjá okkur.

aðalatriðið í tiltektinni var að færa krakkana saman í hjónaherbergið. við keyptum koju handa strákunum og katrín er auðvitað í sínu rúmi ennþá. settum svo sjónvarp og vídeo, dvd og tölvuna hans kris upp og núna er þetta sannkölluð paradís fyrir krissa. við eigum þó eftir að setja upp hillur og fleira smálegt fyrir krissa og allt hans dót en hann er sáttur þó hann deili herbergi með systkinum sínum.

síðasta mánudag fórum við á flugeldasýningu hjá perlunni og dáðumst að fallegum bombum. jón var ekki alveg viss hvernig hann átti að taka þessu en við kepptumst svo við að dást að flugeldunum að hann var farinn að fíla þetta í lokin.. og enn meira á leiðinni heim :))

núna eru svo áramótin að bresta á.. einungis nokkrir klukkutímar eftir af árinu 2008 og við munum kveðja með hvelli :yes: við fórum eftir flugeldasýninguna og keyptum bombur. planið er að jón og katrín muni vaka nógu lengi til að sjá flugeldaflóðið um áramótin. síðast þegar katrín og kris voru með okkur um áramót vorum við fyrir norðan og hún hló og hló að þessu öllu saman.. þá var jón nýfæddur og svaf allt af sér í kengúrupokanum framan á mér :yes:

jæja, við hér í rjúpnasölum 10, óskum öllum gleðilegs nýs og farsæls árs.

reytingur héðan og þaðan

By prakk0 on Oct 29, 2008 | In Prakkarar | 5 feedbacks »

já jón kallinn er kominn á leikskólann rjúpnahæð. gekk rosa vel til að byrja með, svo tók hann ca. viku í að gráta þegar við fórum og núna hleypur hann inn og nær sér í dót.

ég fann tvo hnúða í hálsinum á honum, fór með hann til læknis á þriðjudaginn og kom í ljós að þetta eru bólgnir kirtlar. sverrir pantaði svo tíma fyrir jón hjá háls,nef og eyrnalækni og fékk tíma í dag. greining frá einari ólafs að það þarf að setja rör og taka nefkirtla.. þessir hnúðar eru allt í lagi, sérstalega út af eyrnabólgunni.

katrín var í vetrarfríi síðustu helgi, var frá fimmtudegi til mánudags. við mæðgur vorum saman heima fimmtudag og föstudag og notuðum tækifærið til að fara í verslunarmiðstöðvarnar og kaupa jólagjafir. rosa gott að komast að versla þegar allir aðrir eru að vinna. núna erum við búin að kaupa 5 jólagjafir og búin að ákveða 4 í viðbót, erum bara að bíða eftir næstu mánaðarmótum til að kaupa þær
:yes: þá er bara eftir að kaupa handa krökkunum okkar og þá erum við búin - eigum semst eftir að kaupa 7 jólagjafir. við erum einnig búin að ákveða að vera nísk þessi jól og ekki hafa myndajólakort, ætlum bara að skrifa fallega kveðju. en aftur að katrínu, hún fór í klippingu á mánudaginn, var sennilega tekið um 5-7 cm af síddinni og toppurinn styttur um 2cm þannig að daman sér eitthvað út um lokkaflóðið. það var orðið erfitt að halda hárinu á henni úr matnum, það var orðið svo sítt. hún er líka búin að missa einn einn jaxlinn og á held ég bara eftir að missa 4-5 barnatennur í viðbót. hún og kristofer eru einnig í vörtumeðferð. katrín greyið er með flökku/frauðvörtur undir handakrikunum og kristofer er með nokkrar í hnésbótinni og svo 4 stórar venjulegar vörtur á táberginu. hann er búinn að vera í meðferð út af þeim í rúmt ár og gengur voða hægt að losna við þær. "góðir hlutir gerast hægt" höldum bara fast í þetta máltak.

krisofer er einnig farinn að æfa fimleika tvisvar í viku og skák einu sinni í viku þannig að það er nóg að gera hjá honum milli heimalærdóms og að leika sér.. hann er rosa duglegur strákur og farinn að muna eftir öllum reglunum sem við leggjum á hann.. muna eftir lyklunum sínum, passa að allt komi heim úr skólanum, hringja og láta vita af sér þegar hann fer eitthvað og spyrja leyfis hvort þessi og hinn megi koma og leika inni hjá okkur.. svona basic dæmi en fór alveg með hann í byrjun skólaárs.. hann fór einnig í fyrstu rútuferðina sína til bifrastar til pabba síns og gekk það rosa vel. ég nestaði hann í ferðina með rækjusamloku og svala og svo fékk hann smá nammistykki líka. sverrir sótti hann svo á sunnudagskvöldið og fékk fréttir af honum frá konu sem sat við hliðina á honum á leiðina í borgina. hún sagði sverri að þegar rútan lagði af stað þá hefði minn lygnt aftur augunum og hallað sér að henni og hrotið alla leiðina heim ;D henni fannst þetta svo krúttlegt og fór alveg í ömmufílinginn :.

síðasta laugardag fórum við í heljar göngutúr/sleðaferð með krakkana. kris og jón deildu sleðanum hans kristofers og katrín hjálpaði mér að ýta kerrunni hennar. svo fóru strákarnir að renna sér í brekkunum og sverrir með þeim og við katrín tókum myndir á meðan, síðan fékk daman að fara nokkrar ferðir með pabba og fannst það svona líka gaman.. en á endanum var kuldaboli búinn að nuddast of fast við kinnarnar og við urðum að fara inn... enda líka kominn hádegismatur :)) það var nú voða gott að fara inn í hlýjuna og fá gott í bambann.

en kristofer er að fara í vetrarfrí á morgun og föstudag og hann er sko búinn að ákveða að koma með mér í vinnuna. ekkert eins gaman og að fá að leika í tölvunni allan daginn og fara í kakóvélina til að fá sér heitt og gott kakó..

en látum þetta gott heita í bili, verðum í bandi - þangað til næst
kveðja prakkararnir

Jón á leikskóla

By prakk0 on Sep 23, 2008 | In Prakkarar | 1 feedback »

Jón er núna byrjaður í aðlögun á leikskólanum Rjúpnahæð. Hann fór í klukkutíma í gær svona heimsókn og svo fer hann aftur í c.a. klukkutíma í dag. Og á morgun þá fer hann í 2 tíma og hádegismat. Svo bættist smátt og smátt í þetta. En miðað við fyrstu heimsókn þá mun þetta ganga vel því ég þurfti að draga hann útaf leikskólanum vildi sko ekkert koma með mér heim. Fórum svo upp bústað með dót sem Afi gleymdi að taka með sér. Krissi og Katrín eru alltaf í skólanum og gengur bara vel. Krissi er búinn að vera sérstaklega duglegur að koma heim á réttum tíma og láta af sér.

halló hæ

By prakk0 on Aug 13, 2008 | In Prakkarar | Send feedback »

já já long time no blog...

ég veit ég veit við erum ekkert búin að vera dugleg:oops: en við erum búin að copera allar myndirnar mínar :yes: og þar með er verkið komið áleiðis.. þetta eru nú bara 25 gíg af ljósmyndum þannig að það er ekkert mál.. not

en yfir í fréttir af krökkunum. jón er alveg að fara að byrja á leikskóla. það verður sennilega núna í ágúst eða byrjun sept, verður eiginlega að vera í ágúst því dagmamman er að fara í sumarfrí frá 1. sept til 8. okt og er að fara í reisu til ástralíu.. hún er löngu búin að tilkynna öllum um þetta þannig að þetta eru engar nýjar fréttir en ýtir bara undir að hann verður að komast inn á leikskólann. það verður enginn smá munur. leikskólinn er við hliðina á okkur þannig að maður sparar haug af tíma og helling af peningum í leiðinni :>> annars er jón algjör dúllurass eins og vanalega. hann er voða duglegur að deila með sér og ef hann fær nammi (td. seríos í skál eða bláber/vínber) þá er hann svo góður að gefa katrínu og krissa með sér og maður þarf eiginlega að passa að hann fái eitthvað sjálfur :yes: svo er hann að æfa sig í enskunni ;) segir lovjú og liverpool og æfir nöfnin á leikmönnunum með pabba sínum :. bara dúllur.
við vorum 3 saman í sumarfríi meðan stóru fóru í frí til pabba síns og það var voða notalegt. gott að vera stundum bara 3 saman. við eyddum fyrri vikunni í að laga til heima, hreinsa út úr geymslunni og þvottahúsinu og á meðan var jón hjá dagmömmunni, svo seinni vikuna vorum við alveg límd saman og kíktum á ömmu og afa í skriðuseli og fórum í sumarbústaðinn á fimmtudeginum. katrín kom svo og hitti okkur á þingvöllum og fór með okkur í bústaðinn eftir fríið sitt hjá stefáni en kristofer er enn hjá afa sínum og ömmu fyrir austan, á vopnafirði.

greyið er samt farið að leiðast þarna fyrir austan og vill fara að komast heim, leika með vinunum síðustu dagana fyrir skólann og knúsa okkur familíuna. hann saknar okkar og við söknum hans :yes: æ mig langar líka bara að fá hann heim.. hann er búinn að vera svo mikið frá okkur í sumar og mér finnst bara vera kominn tími á að fá hann til okkar ;D hann er líka orðinn illa spenntur fyrir að fara að byrja í 4. bekk og í haust er hann að fara að taka fyrstu samræmdu prófin sín, í stærðfræði og íslensku svo það verður spennandi að sjá hvernig það fer. svo er pabbi þeirra fluttur á bifröst þannig að það verður eitthvað gaman að sjá hvernig pabbahelgarnar verða 88| kannski rútuferðir fram og til baka eða að hann nái í þau heim til okkar og skili aftur.. gaman það!

eins og áður sagði kom katrín heim á föstudaginn síðasta og vorum við þá í bústaðnum. daman var komin með slæma sýkingu undir handakrikana og exem ofan í það þannig að við rukum með hana til læknis á sunnudeginum til að fá eitthvað við þessu. Læknirinn talaði um að svona sýkingar séu algengar eftir heitapotta. hún er allavega öll á batavegi greyið en þetta voru orðin ljót sár undir öðrum krikanum og stefndi í það sama undir hinum

var að fá hringingu frá stebba um að kris er að koma heim með flugi á eftir.. hlakka bara til, og guttinn fær að verja seinnipartinum í vinnunni með mér. honum finnst það ekki slæmt því hann má fara í kakóvélina og í ávaxtaskálina og í tölvuna þannig að þetta er bara draumur í dós ;D

en vinnan kallar, verð í bandi seinna

í sumarfrí er gaman, þá leika allir saman....

By prakk0 on Jul 27, 2008 | In Prakkarar | 6 feedbacks »

lalalalalala
jább, krissi og katrín eru komin í sumarfrí til pabba síns og fóru austur á land í gær, alla leið til vopnafjarðar þar sem afi þeirra býr. vonandi bara að þau njóti hitans og sólarinnar sem hefur verið að glenna sig þar eins og einhver bjáni :crazy: hún (sólin) veit nottlega ekki að það er miklu mikilvægara að skína á reykjavíkurhorninu :yes:

nú hann jón pétur (peddilee) er að brillera í íslenskunni. ég sver að barnið verður orðið altalandi um 2 ára aldurinn ;D hann er alltaf að bæta í orðaforðann og apa upp eftir okkur.. er samt með pínu gormæltan hreim eða smá franskann.. man auðvitað engin dæmi til að útskýra en hann er snilld drengurinn..

dagmamman spurði okkur á fimmtudaginn hvernig við skömmum drenginn og fáum hann til að hlýða, við sögðum henni að ef þetta er major alvarlegt og jón er ekki að taka sönsum :lalala: þá er honum hent í rúmið sitt í skammarkrók í 2 mín og nottlega sagt af hverju hann fer þangað, annars látum við nægja að garga á hann að hætta þessu og hlíða okkur.. þetta er ekki að virka hjá dagmömmunni og hún spurði dóttur sína ráða (sem er barnasálfræðingur) og sú benti henni á að setjast í sófann og láta hann sitja á gólfinu og halda honum með fótunum, útskýra fyrir honum að hún ráði og hann eigi að hlýða og þetta eigi að standa yfir í 2 mín.. minn varð nottlega bilaður og öskraði alveg en eftir mínúturnar þá varð minn bljúgur sem lamb.. ekki málið að hlýða henni röggu sinni.. bara eins og hann hefði aldrei gert annað

við fórum með krakkaskarann í klippingu og sverrir fór líka.. kostaði rétt rúmar 12 þúsund að klippa 4 hausa.. ég verð nú bara að segja að ég er nokkuð sátt með það.. enda hefur það verið að kosta mig um 21 þús max að láta klippa og lita mitt hár.. enda fer ég þangað ekki lengur..

jæja við erum semst komin í sumarfrí og núna er stefnan sett á að fara að hlaða inn myndum alveg í gríð og erg.. þangað til næst.. hold on tight.. og kvittið fyrir komuna takk :yes:

1 2 >>
blogging software

©2009 by prakk0 | Contact | evoCamp skin | Credits: Blog Design | blog tool | low cost hosting | adsense